Við kynnum til leiks nýjan starfsmann.
/in Fréttir /by HelgaArnþór Ari Atlason er nýráðinn verkefnastjóri stofunnar. Bjóðum hann velkomin til starfa.
Bjóðum Olgu Unnarsdóttur velkomna til starfa.
/in Fréttir /by HelgaOlga hefur störf 14. janúar.
Ný reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.
/in Fréttir /by HelgaNý reglugerð nr. 1251/2018 um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu tók gildi þann 1. janúar sl. Helstu breytingar frá fyrri reglugerð eru að greiðslumark almennings fer úr 25.100 kr. í 26.100 kr. og greiðslumark hjá öldruðum, öryrkjum og börnum fer úr 16.700 í 17.400 kr. Lágmarksgreiðsla á mánuði er 4.340 kr. á mánuði hjá almenningi og 2.900 kr. hjá öldruðum, öryrkjum og börnum.
Komugjöld á heilsugæslu og læknavakt eru gjaldfrjáls fyrir aldraða og öryrkja frá og með 1. janúar sl. Komugjöld vegna komu, endurkomu og á bráðamóttöku sjúkrahúsa hækka í 6.700 kr. hjá almenningi en eru 4.400 kr. hjá öldruðum og öryrkjum. Komugjöld á göngudeildir sjúkrahúsa hækka í 3.700 kr. fyrir almenning en eru 2.400 kr. hjá öldruðum og öryrkjum.
Einnig hefur verið gerð breyting frá fyrri reglugerð á fjölda skipta í þjálfun á ári. Í stað þess að heimild sé fyrir 20 skiptum í sjúkra-, tal- og iðjuþjálfun verður heimild fyrir 15 skiptum á hverju 12 mánaða tímabili. Eftir það þarf að sækja um framhald til Sjúkratrygginga Íslands og ákveðin skilyrði verða að vera uppfyllt.
Komin til vinnu eftir veikindaleyfi.
/in Fréttir /by HelgaÞorsteinn okkar er komin til vinnu eftir mánaðar fjarveru, erum byrjuð að taka við bókunum.
Gjaldskrá fyrir sjúkraþjálfun 1. janúar 2019
/in Fréttir /by HelgaSkv. reglugerð og rammasamningi um sjúkraþjálfun
Áramótakveðja
/in Fréttir /by HelgaStarfsfólk Sjúkraþjálfunarinnar Sporthúsinu óska skjólstæðingum og velunnurum farsældar á árinu.
Bjóðum velkomna til starfa á nýju ári.
/in Fréttir /by HelgaBjóðum Jófríði velkomna til starfa, hún hefur störf hjá okkur 3. janúar 2019.
Opnunartími um hátíðarnar
/in Fréttir /by HelgaUm leið og við óskum skjólstæðingum okkar og velunnurunum gleðilegrar hátíðar viljum við benda á að stofan verður lokuð á milli jóla og nýárs, opnum endurnærð 3 janúar.
Starfsfólk sjúkraþjálfunarinnar Sporthúsinu.
Nýlegar fréttir
Heimilisfang
Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu ehf
Dalsmára 9-11
Sími 564-4067
Tölvupóstur sjukrathjalfunin (hjá) sporthusid.is