Fyrirbyggjum meiðsli!

Lausir tímar í heilsunudd hjá Hannesi.

Lausir tímar 20. og 21 nóvember fyrir hádegi.
Hannes er lærður heilsunuddari. Hann býður upp á kröftugt og djúpt nudd sem er áhrifaríkt fyrir alla sem eru að gríma við verki, stiriðleika, bólgur o.fl. í líkamanum.
Hannes hefur unnið með atvinnufólki í íþróttum því er tilvalið að koma í íþróttanudd til hans til að ná enn betri árangri eða flýta fyrir bata.

Fréttatilkynning frá Félagi sjúkraþjálfara

Samkomulag hefur náðst milli Félags sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) um að fela gerðardómi að úrskurða um lagalega óvissu um gildistíma rammasamnings.

Það felur í sér að FS fellst á að starfað verði eftir samningnum á meðan á gerðardómsmeðferð stendur. Þetta þýðir að frá og með morgundeginum eru sjúkraþjálfarar aftur á tímabundnum samningi með eðlilegum rafrænum samskiptum við SÍ. “Það er mikilvægt fyrir okkur sjúkraþjálfara að SÍ hefur fallist á að jafnhliða verða hafnar viðræður um innkaupaaðferðir og leiðir til að koma á samningum um þjónustu sjúkraþjálfara”, segir Unnur Pétursdóttir, formaður Félags sjúkraþjálfara.

Sjúkraþjálfarar starfa ekki lengur eftir samningi við Sjúkratryggingar Íslands

Samningurinn löngu útrunninn

Samskipti sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands eru í uppnámi eftir að stofnunin tilkynnti einhliða 8. nóvember að sjúkraþjálfarar væru bundnir af ákvæðum rammasamnings næstu sex mánuði – þrátt fyrir að samningurinn hafi runnið út þann 31. janúar síðastliðinn. Sjúkraþjálfarar sætta sig ekki við að starfa áfram á samningi sem ekki hefur verið leiðréttur í 9 mánuði. Þetta gerist í framhaldi af því að boðað var opið útboð á þjónustu sjúkraþjálfara, sem þeir telja að verði skaðlegt fyrir sjúkraþjálfun í landinu.

„Framganga Sjúkratrygginga ber keim af því að verið sé að refsa sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfurum fyrir að hafa efasemdir um það sé rétt að taka þátt í opnu útboði, sem var ávísun á fullkomna óvissu,” segir Unnur Pétursdóttir, formaður Félags sjúkraþjálfara. Sjúkratryggingar frestuðu útboði til 15. janúar eftir að mikil gagnrýni hafði komið fram um það hvernig að því var staðið. „Undir kvöld í gær barst síðan bréf frá forstjóra S.Í. Það reyndist innihalda rangfærslur og hótanir í garð sjúkraþjálfara, sem ævinlega hafa hagað málflutningi sínum og ákvörðunum með hagsmuni skjólstæðinga í huga. Forstjórinn fullyrðir þvert á móti að sjúkraþjálfarar séu skeytingarlausir um hagsmuni sjúkratryggðra. Við undrumst þau ummæli, svo ekki sé meira sagt.”

Þrátt fyrir að sjúkraþjálfarar hafi boðist til að vera áfram í rafrænum samskiptum við S.Í., skjólstæðingum til hagræðis, véfengdi stofnunin rétt þeirra til að fara af samningi og hafa engar ráðstafanir verið gerðar til að gera aðilum kleift að vera í rafrænum samskiptum um endurgreiðsluhluta sjúklinga. „Við hörmum auðvitað þau óþægindi sem þessi ágreiningur við S.Í. getur haft á skjólstæðinga okkar. Sjúkraþjálfarar starfa því frá 12. nóvember samkvæmt eigin verðskrá og geta ekki haft milligöngu um sjálfvirka endurgreiðslu með rafrænum hætti. Þess í stað verðum við að beina skjólstæðingum okkar til S.Í. varðandi endurgreiðslur, sem þeir eiga áfram rétt á lögum samkvæmt” segir Unnur.

Unnur Pétursdóttir segir að staðan sé erfið en órofa samstaða sé meðal sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara um að standa vörð um faglega hagsmuni og velferð skjólstæðinga sinna.

Samninganefnd sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara

Frétt tekin af heimasíðu félagi sjúkraþjálfara.
https://www.physio.is/um-felagid/utgafa/frettir/sjukrathjalfarar-starfa-ekki-lengur-eftir-samningi-vid-sjukratryggingar-islands

Samningur sjúkraþjálfara við Sjúkratryggingar Íslands er runninn út

Orðsending til skjólstæðinga sjúkraþjálfara

Frá og með 12. nóvember munu sjúkraþjálfarar setja nýja gjaldskrá fyrir þjónustu sína þar sem samningur við SÍ er runninn út.

SÍ hefur ekki gengið að boði sjúkraþjálfara um rafræn samskipti, sem fela í sér sjálfvirka endurgreiðslu tryggingahlutans. Sjúkraþjálfarar eru því knúnir til að innheimta fullt gjald af skjólstæðingum sínum fyrir þjónustuna og beina því til þeirra að leita réttar síns varðandi endurgreiðslur hjá SÍ.

Með vinsemd og virðingu

Félag sjúkraþjálfara

www.physio.is

Til upplýsingar:
Sjúkratryggingar Íslands
Vínlandsleið 16
S. 515-0000
www.sjukra.is

Viltu ná hámarks árangri?

Með haustlægðunum