– Undirstöðuatriði í líkamsvitund og réttri líkamsbeitingu

Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu verður með tvö þriggja vikna námskeið fyrir
börn á aldrinum 13-16 ára. Námskeiðin verða kennd tvisvar í viku annars
vegar á tímabilinu 4. mars – 20. mars og 25. mars – 10. apríl hinsvegar.

Markmið námskeiðisins er að kenna ungum íþróttaiðkendum undirstöðuatriði
í styrktarþjálfun. Áhersla er lögð á rétta líkamsbeitingu og
líkamsvitund til að draga úr líkum á íþróttameiðslum. Á námskeiðinu
verður einnig stiklað á stóru um hversu mikilvæg tengsl næringar og
heilsu er fyrir íþróttafólk sem og hversu mikilvægt það er að setja sér
markmið. Umfang námskeiðisins stuðlar allt að því að iðkendur taki næsta
skref í að hámarka árangur í íþrótt sinni.

Staðsetning: Salur 9, Sporthúsinu Dalsmára 9-11, 201 Kópavogi

Tímasetning: Mánudaga og miðvikudaga kl. 15:15 – 16:00

Lengd: 3 vikur, tvö námskeið í boði: 4. mars – 22. mars og 25. mars-13. apríl

*Verð: 15.000 kr.

Þjálfarar: Jóhanna Björk Gylfadóttir og Olga Unnarsdóttir sjúkraþjálfarar

Skráning fer fram í gegnum heimasíðuna okkar sjukrasport.is, frekari upplýsingar eru í síma 564-4067 eða á netfangið sjukrathjalfunin@sporthusid.is

* Greiðsla staðfestir skráningu, krafa verður gerð á forráðamann.

Skráning á námskeiðið

Viltu ná hámarks árangri?

1 + 0 = ?