Orðsending til skjólstæðinga sjúkraþjálfara
Sjúkraþjálfarar hafa unnið eftir rammasamningi
Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem sem rann út þann 31. janúar 2019 en framlengdur
hefur verið einhliða af hálfu SÍ.
SÍ hafa auglýst útboð á sjúkraþjálfun á höfuðborgarsvæðinu án
nokkurs samráðs við sjúkraþjálfara sem veitendur þjónustunnar. Útboðið sem SÍ hefur boðað og skilmálar þess
telja sjúkraþjálfarar skaðlegt fyrir sjúkraþjálfun í landinu og ógna fagþróun
sjúkraþjálfunar í landinu til lengri tíma litið. Einnig telja þeir það vinna gegn hagsmunum
notenda sjúkraþjálfunar.
Við þessar aðstæður sjá sjúkraþjálfarar sér ekki annað fært
en að stíga til hliðar og hætta að starfa eftir útrunnum rammasamningi við
Sjúkratryggingar Íslands um óákveðinn tíma frá og með 13. janúar næstkomandi.
Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð er varðar
lögbundnar endurgreiðslur til sjúkratryggðra skv. gjaldskrá SÍ. Sjúkraþjálfarar munu hafa milligöngu og innheimta
greiðsluhluta SÍ beint skjólstæðingum til hagræðis.
Þjónustan gagnvart
skjólstæðingum mun ekkert breytast, þetta er ekki verkfall. Öll þjónusta
sjúkraþjálfara verður á sínum stað, allir tímar munu standast og hópar munu
halda áfram í óbreyttu formi.
Það eina sem breytist
gagnvart skjólstæðingum sjúkraþjálfara er að greiða þarf aukalega mismun á
gjaldskrá sjúkraþjálfunarstofunnar og gjaldskrá SÍ
Með vinsemd og
virðingu
Félag sjúkraþjálfara
10. janúar 2020