Niðurstaða gerðardóms í deilu sjúkraþjálfara við Sjúkratryggingar Íslands um gildistíma rammasamnings var birt í dag, þann 20. desember 2019. Dómsorðið er:

“Aðilum rammasamnings Sjúkratrygginga Íslands og sjúkraþjálfara sem undirritaður var 13. febrúar 2014 er óskylt að fara eftir ákvæðum samningsins frá og með mánudeginum 13. janúar nk.

”Þetta þýðir að sjúkraþjálfurum er ekki skylt að starfa eftir útrunnum samningi eftir 12. janúar 2020.