Entries by Helga

Við kynnum til starfa

Hún Fanney Andrea sem er búin að vera hjá okkur frá haustmánuðum hefur ákveðið að snúa sér að öðrum störfum. Í hennar stað hefur verið ráðin Sunna Baldvinsdóttir. Bjóðum hana velkomna til starfa

Stoðkerfisverkir, hvað er til ráða?

  Stoðkerfisverkir, hvað er til ráða?  – Fræðsla fyrir almenning á vegum Félags sjúkraþjálfara Fimmtudagur 19. maí kl 19:30 í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg 6, Laugardal. Fræðsla um málefnið ætluð almenningi (verkjasjúklingum og aðstandendum) verður haldin á vegum Félags sjúkraþjálfara í Reykjavík og á Akureyri. Fyrirlesarar eru þeir Þorvaldur Skúli Pálsson Ph.D og Steffen Wittrup […]

Hvatningarverðlaun

Á degi Sjúkraþjálfunar 4 mars síðastliðinn voru veitt Hvatningarverðlaun FS fyrir ötult og gott starf í þágu félagsins. Verðlaunin fengu Kristín Rós Óladóttir formaður norðurlandsdeildar FS , Sigurður Sölvi Svavarsson stjórnarmaður og  Sigrún “okkar” Konráðsdóttir formaður fræðslunefndar. Við óskum Sigrúnu innilega til hamingu.  

Stoðkerfiskólinn hefst 11apríl 2016.

Stoðkerfisskólinn hefst 11 apríl 2016 og stendur hann í 12 vikur. Vika 1 – 6 kennt á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl 12:00 – 12:50 Vika 7 – 8 kennt er kennt á mánudögum og föstudögum frá kl 12:00 – 12:50 Vika 9 – 12 þá er kennt á miðvikudögum frá kl 12:00 – 12:25 Kennarar […]

Dagur sjúkraþjálfunar 2016

Þann 4. mars 2016 mun Félag sjúkraþjálfara halda “Dag sjúkraþjálfunar” á Hilton Reykjavík Nordica. Sjúkraþjálfarar stofunar munu vera á þessum degi og verður stofan því lokuð þann dag.

Næringarfyrirlesturinn 28 janúar.

Þann 28 janúar kom hún Birna G. Ásbjörnsdóttir og hélt fyrirlestur um þarmaflóruna og hlutverk hennar með tilliti til andlegrar og líkamlegrar heilsu. Vel var mætt og þökkum við fyrir góðar viðtökur. Birna er að ljúka meistaragráðu í næringalæknisfræði frá University of Surrey í Bretlandi. Hún er samhliða því í meistaranámi í gagnreyndum heilbrigðisfræðum. Birna heldur út heimasíðunni jorth þar […]