Opnunartími um hátíðirnar.

Um leið og við óskum skjólstæðingum okkar og velunnurunum gleðilegrar hátíðar viljum við benda á að stofan verður lokuð frá og með 23 desember, opnum endurnærð 4 janúar.

Starfsfólk sjúkraþjálfunarinnar Sporthúsinu.

Næringarfyrirlestur

Fjallað verður um þarmaflóruna og hlutverk hennar með tilliti til
andlegrar og líkamlegrar heilsu. Röskun á bakteríum í meltingavegi
hefur oft slæmar afleiðingar á heilsufar, jafnvel síðar á lífsleiðinni. Farið
verður yfir orsök og afleiðingar hjá börnum og fullorðnum.
Fyrirlesarinn að þessu sinni er Birna G. Ásbjörnsdóttir. Birna er að ljúka
meistaragráðu í næringalæknisfræði frá University of Surrey í Bretlandi.
Hún er samhliða því í meistaranámi í gagnreyndum heilbrigðisfræðum.
Fyrirlesturinn verður í sal 9, fimmtudaginn 12. nóvember kl. 18:30,
í Sporthúsinu Dalsmára 9–11, 201 Kópavogi.
Hægt er að skrá sig á sjukrathjalfunin@sporthusid.is
eða í síma 564 4067
Frír aðgangur.

Stoðkerfiskólinn hefst 25 janúar 2016.

Stoðkerfisskólinn hefst 25 janúar 2016 og stendur hann í 12 vikur.

Vika 1 – 6 kennt á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl 12:00 – 12:50
Vika 7 – 8 kennt er kennt á mánudögum og föstudögum frá kl 12:00 – 12:50
Vika 9 – 12 þá er kennt á miðvikudögum frá kl 12:00 – 12:25

Kennarar stoðkerfisskólans eru Hólmfríður Þorsteinsdóttir og Sigrún Konráðsdóttir sjúkraþjálfarar.

Skráning er hafinn í hægt er að senda tölvupóst á sjukrathjalfunin@sporthusid.is eða hafa samband í síma 564 4067.

Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar, 8. september.

Sjúkraþjálfarar gegna lykilhlutverki í að aðstoða fólk sem býr við fötlun eða langvarandi heilsubrest í að ná markmiðum sínum, uppfylla möguleika sína og taka fullan þátt í samfélaginu. Þetta eru skilaboð þúsunda sjúkraþjálfara um allan heim á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar. „Fólk sem leitar til og þarf þjónustu sjúkraþjálfara er allt frá börnum til aldraða, frá fólki með mikla fötlun til afburða íþróttamanna.

Með aðkomu okkar sjúkraþjálfaranna og áherslu okkar á hreyfingu, þjálfun og virkni við höfum tækifæri til að tryggja að fólk nái takmarki sínu, hvert sem það kann að vera” segir Emma Stokes, forseti heimssambands sjúkraþjálfara, WCPT.

Á Íslandi starfa tæplega 600 sjúkraþjálfarar á sjúkra- og endurhæfingarstofnunum, hjúkrunarheimilum, á einkareknum starfsstofum sjúkraþjálfara og hjá íþróttafélögum.

Skipulagsdagur 4. september

Föstudaginn 4 september lokum við kl 13:00 vegna skipulagsdags. Opnum aftur á mánudagsmorgni 7 september kl 8:00

Stoðkerfisskólinn hefst 21 september.

Stoðkerfisskólinn hefst 21 september og stendur hann í 12 vikur.

Vika 1 – 6 kennt á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl 12:00 – 12:50
Vika 7 – 8 kennt er kennt á mánudögum og föstudögum frá kl 12:00 – 12:50
Vika 9 – 12 þá er kennt á miðvikudögum frá kl 12:00 – 12:25

Kennarar stoðkerfisskólans eru Hólmfríður Þorsteinsdóttir og Sigrún Konráðsdóttir sjúkraþjálfarar.

Skráning er hafinn í hægt er að senda tölvupóst á sjukrathjalfunin@sporthusid.is eða hafa samband í síma 564 4067.

 

 

 

Kynnum til starfa

frettatilkynning