Í ljósi aðstæðna hefur verið tekið upp nýtt verklag á stofunni.
Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu hefur öryggi, heilsu og hagsmuni viðskiptavina í forgangi. Í ljósi aðstæðna hefur verið tekið upp nýtt verklag í samræmi við leiðbeinandi tilmæli heilbrigðisyfirvalda. Við tryggjum þannig áframhaldandi þjónustu við bestu mögulegu aðstæður. Eftirfarandi atriði hér að neðan eiga við um hverja meðferð til að tryggja hreinlæti og koma í veg fyrir smit. Athygli er vakin á því að Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu mun aðlaga aðgerðir sínar eftir því sem aðstæður breytast og þörf krefur.
- Farið er fram á að viðskiptavinir noti handspritt áður en innritun fer fram í gegnum snertiskjá.
- Skartgripir í meðhöndlun eru óheimilir.
- Sjúkraþjálfarar nota hlífðargrímu og einnota hanska.
- Allur búnaður sótthreinsaður og varinn fyrir smiti fyrir og eftir meðferð.
- Sjúkrabekkir eru varðir með einnota pappírsörk.
- Koddar varðir sérstaklega.
- Lök reglulegra viðskiptavina eru sérstaklega varin.
- Normatec tæki og togbekkur falla hér einnig undir.
- Sjúkraþjálfarar þvo hendur með viðeigandi hætti fyrir og eftir meðferð.
- Sjúkraþjálfarar takmarka ferðalög erlendis á meðan óvissuástand ríkir.
- Sjúkraþjálfarar takmarka samgang sín á milli.
Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu ítrekar nauðsyn þess að viðskiptvinir séu heiðarlegir um eigið heilsufar. Í því felst að viðskiptavinir nýti ekki þjónustu stofunnar leiki grunur á einkennalausu smiti, viðkomandi finni fyrir flensulíkum einkennum og/eða viðkomandi sætir sóttkví.
Hugum að eigin heilbrigði.