Opnunartími um hátíðarnar.

Um leið og við óskum skjólstæðingum okkar og velunnurum gleðilegrar hátíðar viljum við benda á að stofan lokar á hádegi 22. desember. Skert viðvera verður á milli jóla og nýárs en það er alltaf hægt að senda okkur tölvupóst á sjukrathjalfunin@sporthusid.is   

Sjáumst hress og kát á nýju ári. 
Starfsfólk Sjúkraþjálfunarinnar Sporthúsinu

Við kynnum nýja starfsmenn til leiks.

Við bjóðum Bjarka Sigmundsson velkomin til starfa.
Bjarki útskrifaðist frá Háskóla Íslands í sjúkraþjálfun 2022.

Helstu áhugasvið eru meðal annars:  Íþróttasjúkraþjálfun, öldrunarsjúkraþjálfun, jafnvægisþjálfun, almenn styrktarþjálfun og forvarnir meiðsla.

Bjarki hefur verið sjúkraþjálfari hjá meistaraflokki ÍA í fótbolta karla undanfarið.

Hægt er að skrá sig á biðlistann og við höfum samband og finnum tíma fljótlega fyrir þig.

Við bjóðum Andrés Wolanczyk velkomin til starfa.
Andrés  útskrifaðist frá Háskóla Íslands í sjúkraþjálfun 2022.

Helstu áhugasvið eru meðal annars: Íþróttasjúkraþjálfun, öldrunarsjúkraþjálfun, stoðkerfissjúkraþjálfun, almenn styrktarþjálfun, forvarnir meiðsla og afreksþjálfun.

Andrés hefur verið sjúkraþjálfari HK í handbolta karla undanfarið.

Hægt er að skrá sig á biðlistann og við höfum samband og finnum tíma fljótlega fyrir þig.

Við bjóðum Katrínu Hermannsdóttur  velkomna til starfa.

Katrín kemur til með að standa seinniparts vaktina í afgreiðslunni.

Skipulagsdagur

Stofan lokar á hádegi í dag föstudaginn 16. september vegna starfsdags.
Opnum aftur hress og kát á mánudaginn kl 8:00

Hægt er að senda tölvupóst á sjukrathjalfunin@helga

Lokað vegna sumarleyfa 28 og 29 júlí.

Stofan verður lokuð fimmtudaginn 28 og 29 júlí. Opnum aftur hress og kát eftir verslunarmannahelgina 2 ágúst.

Símamótið 2022

Símamótið 2022 fer fram 7 – 10 júlí. Allir leikir í mótinu fara fram á völlum á félagssvæði Breiðabliks. Vinsamlegast ath að það getur tekið lengri tíma að finna bílastæði en vanalega.

Sumarleyfi

Nú er júlí mánuður að ganga í garð og tími sumarleyfa starfsmanna að byrja. Heiðdís verður að nudda á fullu í júlí endilega bóka í nudd hjá henni. Tökum við bókunum í síma 564 4067

Heiðdís Huld Segatta nuddari.

Heiðdís Huld Segatta nuddari verður hjá okkur í sumar. Hægt er að bóka tíma hjá henni í síma 564 4067

Hætt störfum.

Olga okkar hefur ákveðið að takast á við ný ævintýri og flytjast til Akureyrar.
Við þökkum henni kærlega fyrir samstarfið síðast liðin ár og megi henni farnast sem best i framtíðinni.