Ásdís Guðmundsdóttir snýr aftur til starfa.
Ásdís Guðmundsdóttir snýr aftur til starfa eftir færðingarorlof.
Við bjóðum Ásdísi velkomna til starfa.
Ásdís Guðmundsdóttir snýr aftur til starfa eftir færðingarorlof.
Við bjóðum Ásdísi velkomna til starfa.
Fyrirlesarinn að þessu sinni er Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur. Elísabet er með B.Sc. og MS í næringarfræði sem og MS frá HÍ 2016. Að auki er hún lærður tanntæknir og næringaþerapisti frá CET í Danmörku. Mastersverkefni hennar fjallaði um heilsueflingu a vinnustöðum og lýðheilsuvandamál tengd lífsstíl einstaklinga.
Fyrirlesturinn er um heildræna nálgun næringafræðinnar. Elísabet fjallar um hvernig hún skoðar næringu út frá andlegri og líkamlegri stöðu einstaklinga. Hún ákvarðar þannig réttar og rangar leiðir einstaklingsins til að öðlast heilbrigði. Fjallað verður um hvernig best er að hlusta á eigin líkama og veitt verða góð ráð til að forðast lífsstílssjúkdóma.
Fyrirlesturinn verður í sal 9, þriðjudaginn 25. apríl kl. 20:15 í Sporthúsinu Dalsmára 9–11, 201 Kópavogi. Ókeypis aðgangur
Starfsfólk stofunar óskar skjólstæðngum og velunnurum gleðilegra páska.
Opnunartími yfir hátíðarnar:
13. apríl Skírdagur – Lokað
14. apríl Föstudagurinn langi – Lokað
17. apríl Annar i páskum – Lokað
20. apríl Sumardagurinn fyrsti – Lokað.
Við nýtt greiðsluþátttökukerfi þann 1. maí nk. breytast reglur um greiðsluþátttöku sjúklinga í sjúkraþjálfun.
Samkvæmt drögum að reglugerð er hægt að benda á þessa megin punkta sem hafa áhrif á greiðsluþátttöku í þjálfun.
Greiðslur sjúkratryggðs vegna þjálfunar og læknisþjónustu telja saman upp í afsláttarstofn.
Dæmi um hvernig kerfið virkar fyrir einstakling sem þarf á þjónustu sérfræðilæknis og þjálfara að halda:
Jón er með stöðuna almennur. Hann fer í axlaraðgerð í byrjun maí. Verð sjúkratrygginga fyrir axlaraðgerðina er kr. 140.þús. en Jón greiðir hámarksgreiðslu fyrir aðgerðina 24.600 kr. Tveimur vikum eftir aðgerð (í maí) fer Jón í sjúkraþjálfun, hann notar 3 þjálfunartíma í maí. Þar sem hann hefur þegar greitt hámarksgjald í maí mánuði, greiðir hann ekkert gjald fyrir sjúkraþjálfunina í maí.
Í júní heldur hann áfram í þjálfun, hann kemur 1x í viku í júní, hann greiðir 4.100 fyrir fyrsta tímann, en ekkert gjald fyrir aðra tíma í júní.
Hann kemur einnig í 4 þjálfunartíma í júlí. Hann greiðir 4.100 kr. fyrir fyrsta tímann í þjálfun en síðan ekkert gjald fyrir næstu 3 tíma, því þeir eru í sama mánuði.
Jón notar síðan ekki frekari þjálfun eða aðra heilbrigðisþjónustu fyrr en í október. Hann kemur í 4 tíma í þjálfun í október. Þar sem hann hefur ekki nýtt neina þjónustu í ágúst eða september, þá þarf hann að greiða 4.100 kr. x 3 = 12.300 kr. áður en hann fær afslátt. Hann greiðir því 6.036 kr. fyrir fyrsta tímann í þjálfun, 6.036 fyrir annan tímann, en eingöngu 228 kr. fyrir þriðja tímann (6.036+6.036+228 = 12.300) og síðan ekkert gjald fyrir fjórða tímann.
Þegar einu sinn hefur verið greitt upp í hámarksgreiðslu fyrir heilbrigðisþjónustu (24.600 kr.) verða meðalgreiðslur á mánuði ekki hærri en 4.100. Ef þjónusta er ekki notuð í einhverja mánuði lækkar það sem safnað hefur verið í afslátt um 4.100 kr. / 2.733 kr. á mánuði og einstaklingur greiðir upp í hámarksgreiðslu aftur.
María Jónsdóttir snýr aftur til starfa eftir fæðingarorlof 1. mars næst komandi.
Við bjóðum Maríu velkomna aftur til starfa.
Dagur sjúkraþjálfunar verður haldinn föstudaginn 17. febrúar 2017 á Hótel Nordica.
Aðalfyrirlesari dagsins verður James Moore, sem var aðal-sjúkraþjálfari Breta á Ólympíuleikunum í Ríó síðastliðið sumar.
Stofan verður því lokuð þennan dag, þjálfararnir okkar mæta ferskir til vinnu mánudaginn 20. febrúar.
Stofan fagnar þeim áfanga að eiga 7. ára afmæli í dag. Hipp, hípp, húrra.
Þann 2. júní 2016 var samþykkt á Alþingi breyting á lögum um sjúkratryggingar og á hún að taka gildi 1. febrúar n.k. Samkvæmt lögunum verður innleitt nýtt greiðsluþátttökukerfi fyrir heilbrigðisþjónustu þar sem heilbrigðisráðherra mun ákvarða hámarksgreiðslur sjúkratryggðra fyrir tiltekna heilbrigðisþjónustu.
Heilbrigðisráðherra hefur nú ákveðið að fresta innleiðingu kerfisins til 1. maí n.k. Í því felst að núverandi fyrirkomulag greiðsluþátttöku vegna heilbrigðisþjónustu helst áfram óbreytt.
Með nýja kerfinu verður sett hámark á greiðslur sjúkratryggðra í hverjum mánuði fyrir tiltekna heilbrigðisþjónustu. Þar er m.a. átt við þau gjöld sem sjúkratryggðir greiða fyrir heilbrigðisþjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum og fyrir heilbrigðisþjónustu sem veitt er hjá sjálfstætt starfandi læknum, sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum og talmeinafræðingum.
Við gildistöku nýja kerfisins verður tekið tillit til greiðslna fyrir framangreinda heilbrigðisþjónustu sem veitt er á tímabilinu 1. desember 2016 til og með 30. apríl 2017.
Velferðarráðuneytið hyggst setja reglugerðir um innleiðingu kerfisins í þessum mánuði og verður nýja greiðsluþátttökukerfið þá kynnt nánar.
Hér er frétt Velferðarráðuneytisins um málið:
Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu ehf
Dalsmára 9-11
Sími 564-4067
Tölvupóstur sjukrathjalfunin (hjá) sporthusid.is