Fyrirlestur: Heilsutengd lífsgæði fyrir einstaklinga í þjálfun og íþróttum

Heilsutengd lífsgæði fyrir einstaklinga í þjálfun og íþróttum. Fyrirlesturinn er um næringu og lífsstíl. Fjallað verður um mikilvægi þess að nærast rétt eða sem best fyrir hvern og einn einstakling miðað við verkefni og markmið hverju sinni.

Fyrirlesarinn er að þessu sinni Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur hjá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Hennar sérgrein er næring og heilsutengd lífsgæði. Hún hefur sérhæft sig í að tengja andlegri, félagslegri og líkamlegri vellíðan við góða næringu. Hún mun svara nokkrum spurningum í fyrirlestri sínum:

  • Hvað er það sem skiptir máli og hefur áhrif á andlegt og líkamlegt heilbrigði okkar?
  • Skiptir næring í þjálfun máli?
  • Getur næring aukið árangur í þjálfun? Þá hvernig næring?

Líflegur, fræðandi og skemmtilegur fyrirlestur sem er fyrir alla!

Staðsetning: Salur 9 í Sporthúsinu, Dalsmára 9–11, 201 Kópavogi
Hvenær: Þriðjudagskvöldið 24. október kl. 21.00
Verð: Frítt

Við kynnum til starfa.

Íslenska sjávarútvegssýningin

Íslenska sjávarútvegssýningin.

Verður haldin dagana 13 – 15 september í Smáranum.  Við bendum fólki á að það getur tekið tíma að finna  bílastæði þessa daga.

Skipulagsdagur

Fimmtudaginn 31. ágúst lokar stofan á hádegi vegna skipulagsdags.
Opnum kl 8:00 á föstudags morgninum.

 

Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur

Elísabet er komin úr sumarfríi og við erum byrjaðar að taka við bókunum. 

Hægt er að bóka tíma með að senda tölvupóst á sjukrathjalfunin@sporthusid.is eða hringja í 564 4067

SMS sendingar virkar að nýju.

Okkur til mikilar gleði eru SMS sendingarnar virkar að nýju og berst það degi fyrir bókaðan tíma.
Tölvupóstur um tímabókun ásamt  fundarboði berst degi fyrir bókaðan tíma.

Síðasti vinnudagurinn.

 

Elsa Sæný Valgeirsdóttir snýr aftur til starfa

Elsa Sæný snýr aftur til starfa eftir færðingarorlof 22 ágúst.

Við bjóðum Elsu velkomna til starfa.

Greiðsluþátttökukerfi vegna læknisþjónustu, þjálfunar o.fl.

Þann 1. maí tók gildi nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna heilbrigðiþjónustu.

Markmiðið með því er að lækka útgjöld þeirra einstaklinga sem þurfa mikið á heilbrigðisþjónustu að halda og hafa greitt háar fjárhæðir fyrir þá þjónustu.

Í nýju greiðsluþátttökukerfi mun enginn greiða meira en ákveðna hámarksfjárhæð í hverjum mánuði fyrir heilbrigðisþjónustu.
Þessar fjárhæðir eru tilgreindar í nýrri reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

Á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is er hægt að fylgjast með greiðsluþáttöku.  

Elísabet Reynisdóttir B.Sc. og MS í næringarfræði frá HÍ 2016.

Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur er gengin til liðs við okkur. Við erum spennt yfir þessu nýja samstarfi.
Á næstu vikum mun hún máta sig við aðra fagmenn hússins en kemur svo sterk inn í lok sumars.

Bleikt.is var með viðtal við Elísabetu á dögunum sem má lesa hér.