UPPBÓKAÐ ER Á NÁMSKEIÐIÐ

„Lífið í lag“ er námskeið um heilsutengd lífsgæði. Námskeiðið hentar fólki sem hefur verið að koma sér af
stað í hreyfingu eftir hlé, slys, veikindi eða annars konar áföll, vill koma púlsinum aðeins upp og þarf að
læra sjálfstæði í hreyfingu. Fólki er kennt að koma reglu á næringu og skynsama hreyfingu. Sjúkraþjálfarar
námskeiðsins leggja áherslu á að fræða fólk um rétta líkamsbeitingu og eru með einstaklingsmiðaða þjálfun
til að minnka líkur á stoðkerfisvandamálum. Lögð er áhersla á fjölbreytni í hreyfingu.
Námskeiðið fer fram í leikfimisal, tækjasal og úti þegar veður leyfir. Næringarfræðingur leggur áherslu á að
auka lífsgæði og hámarka árangur með einstaklingsmiðuðum ráðleggingum.
Markmið námskeiðsins er að kenna fólki að ná tökum á skynsamlegri hreyfingu og
næringu til að auka lífsgæði í leik og starfi.

Innifalið í námskeiði:
· Einstaklingsviðtal við sjúkraþjálfara í upphafi námskeiðs.
· Viðtal við næringarfræðing Heilsufarsmælingar (blóðsykur, blóðfita og blóðþrýstingur) fyrir og eftir.
· Markmiðasetning.
· Tveir tímar í viku undir handleiðslu sjúkraþjálfara í 8 vikur (ekki er kennt á hátíðsdögum).
· Aðgangur að tækjasal Sporthússins og opnum tímum.
· Gott samstarf við íþróttafræðing Sporthússins Gull.
· Fræðsla frá sjúkraþjálfara og næringarfræðingi.
· Áhugaverðir fyrirlestrar frá öðru fagfólki.
Hægt er að skrá sig á heimasíðu stofunnar sjukrasport.is

Tími: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11:10-12:00
Lengd: námskeiðið er í 8 vikur
Staðsetning: Salur 9, Sporthúsinu, Dalsmára 9–11, 201 Kópavogi
Kennarar: Ágústa Sigurjónsdóttir, Elsa Sæný Valgeirsdóttir og María Jónsdóttir
sjúkraþjálfarar og Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur.

Skráning á námskeiðið

Lífið í lag

4 + 0 = ?