Hertar sóttvarnaraðgerðir.
Við eins og aðrir vorum aðeins farin að slaka á sóttvarnaraðgerðum en í ljósi aðstæðna höfum við hert á þeim.
Sóttvarnaraðgerðir:
- Vegna hertra aðgerða og tilmæla landlæknis viljum við benda skjólstæðingum okkar
á að mæta með sína eigin hlífðargrímu og nota hana þegar ekki er hægt að halda fjarlægðarmörk. - Farið er fram á að viðskiptavinir noti handspritt áður en innritun fer fram í gegnum snertiskjá.
- Ef þétt er orðið á biðstofunni endilega nýta sér aðstöðuna fyrir framan stofuna.
- Skartgripir í meðhöndlun eru óheimilir.
- Sjúkraþjálfarar nota hlífðargrímu og einnota hanska.
- Allur búnaður sótthreinsaður og varinn fyrir og eftir meðferð.
- Sjúkrabekkir eru varðir með laki eða einnota pappírsörk.
- Koddar varðir sérstaklega.
- Lök reglulegra viðskiptavina eru sérstaklega varin.
- Normatec tæki og togbekkur falla hér einnig undir.
- Sjúkraþjálfarar þvo hendur með viðeigandi hætti fyrir og eftir meðferð.
- Sjúkraþjálfarar takmarka ferðalög erlendis á meðan óvissuástand ríkir.
- Sjúkraþjálfarar takmarka samgang sín á milli.