Kæru skjólstæðingar!
Nú er ljóst að
samkomubannið mun standa í það minnsta til 4.maí næstkomandi. Við minnum á fjarmeðferðarúrræðin sem við erum
með í boði. Sjúkraþjálfarar ykkar geta
komið ykkur af stað í það úrræði eða Arnþór Ari verkefnastjóri. Hafið endilega samband ef þið hafið áhuga með
því að senda póst á arnthorari@sporthusid.is eða
á netfang ykkar sjúkraþjálfara http://sjukrasport.is/starfsfolk/ Við
erum enn að standa neyðarvakt en ítrekum að það á bara við í eftirfarandi
tilfellum:
Nú skiptir verulegu máli
að hver og einn taki ábyrgð á sinni heilsu, biðlum við til ykkar að huga vel að
ykkur og reyna að nýta öll þau ráð sem þið hafið fengið frá ykkar sjúkraþjálfara.
Endilega komið góðri rútínu á daginn
ykkar, haldið góðum svefnvenjum, haldið inni æfingum, góðri og reglulegri
næringu og tökum dögunum með bros á vör.
Eitt bros getur dimmu í
dagsljós breytt.
Gangi ykkur sem allra
best, hlökkum til að taka á móti ykkur að öllu óbreyttu 5.maí næstkomandi
Bestu kveðjur
Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu